102. fundur
fjárlaganefndar á 150. löggjafarþingi.
Fjarfundur haldinn mánudaginn 28. september 2020 kl. 09:31


Mætt:

Willum Þór Þórsson (WÞÞ) formaður, kl. 09:31
Haraldur Benediktsson (HarB) 1. varaformaður, kl. 09:31
Inga Sæland (IngS) 2. varaformaður, kl. 09:31
Björn Leví Gunnarsson (BLG), kl. 09:31
Jón Steindór Valdimarsson (JSV), kl. 09:31
Páll Magnússon (PállM), kl. 09:31
Steinunn Þóra Árnadóttir (SÞÁ), kl. 09:31

Birgir Þórarinsson, Ágúst Ólafur Ágústsson og Njáll Trausti Friðbertsson voru fjarverandi.

Nefndarritarar:
Jón Magnússon
Ólafur Elfar Sigurðsson

Fundurinn var fjarfundur og voru allir tengdir fundinum í gegnum fjarfundabúnað, sbr. afbrigði sem veitt voru skv. 95. gr. við 17. og 22. gr. laga um þingsköp Alþingis, nr. 55/1991, á þingfundi 27. ágúst sl.

Bókað:

1) Íslandspóstur ohf. - Framhaldsúttekt á rekstri og fjárhagsstöðu. Skýrsla til Alþingis Kl. 09:31
Til fundarins komu Skúli Eggert Þórðarson, Guðmundur Björgvin Helgason, Hinrik Þór Harðarson og Jón Loftur Björnsson frá Ríkisendurskoðun. Þeir kynntu niðurstöður úr skýrslu stofnunarinnar um framhaldsúttekt á rekstri og fjárhagsstöðu Íslandspósts ohf. og svöruðu spurningum nefndarmanna um efni hennar.

2) Önnur mál Kl. 10:56
Fleira var ekki gert.

3) Fundargerð Kl. 10:57
Fundargerð 101. fundar var samþykkt.

Fundi slitið kl. 10:58